Tvö ný togskip í smíðum fyrir Skinney – Þinganes

0
3407

Skinney – Þinganes hf. hefur undirritað samning um smíði á tveimur nýjum togskipum. Áætlað er að smíði hvors skips taki 14 mánuði og er gert ráð fyrir að skipin verði afhent í október og nóvember 2019. Skipin eru smíðuð af VARD í Noregi en fyrirkomulag og val á búnaði er unnið í samstarfi við útgerðirnar. Skipin verða 28,95 m að lengd og 12 m að breidd. Í skipunum verða tvær aðalvélar með tveimur skrúfum. Ný kynslóð rafmagnsspila verða í skipunum frá Seaonics.
Þessi nýju systurskip verða vel búin í alla staði og í þeim verða íbúðir fyrir 13 manns. Þau munu taka 244 x 460 lítra kör í lest (um 80 tonn af ísuðum fiski). Við hönnun skipanna hefur verið vandlega hugað að allri nýtingu á orku.
Við hönnun á vinnsludekki verður höfð að leiðarljósi vinnuaðstaða sjómanna, öflug kæling og góð meðhöndlun á fiski. Horft verður til þeirra gæða og reynslu sem íslenskir framleiðendur búa yfir á smíði vinnslubúnaðar.

Consortium - Vard Aukra - Signeringsbilde

Alls undirrituðu fulltrúar fjögurra íslenskra útgerðarfyrirtækja samninga um smíði á sjö samskonar skipum. Auk skipanna sem smíðuð verða fyrir Skinney – Þinganes hf. verða tvö skip smíðuð fyrir Berg-Hugin, tvö fyrir Gjögur, og eitt fyrir Útgerðarfélag Akureyringa.
Fyrstu skipin koma til landsins í mars og maí 2019.