Tilkynning frá Sveitarfélaginu varðandi sorpmál

0
1331

Nýtt klippikort

verður tekið í notkun á endurvinnslusvæði sveitarfélagsins.

Frá og með 1. október þurfa íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar klippikort til að komast inn á endurvinnslusvæðið á Höfn.

Klippikortin er hægt að nálgast í afgreiðslu Ráðhúss, einungis fasteignaeigendur íbúða/húsa sem greiða sorphirðugjöld fá afhent kort. Leigjendur verða að fá kortin afhent af leigusala sínum.

Tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi  án greiðslu en klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang. Hvert klipp gildir fyrir 0,25 m3 sem samsvarar 240 l. heimilistunnu. Á hverju korti eru 16 klipp sem duga samtals fyrir 4 m3.  Að öllu jöfnu á kortið að gilda út árið. Klárist kort þá verður hægt að kaupa aukakort í afgreiðslu Ráðhúss.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is.