Matthildur Ásmundardóttir ráðin bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði

0
1452

Matthildur Ásmundardóttir fram­kvæmda­stjóri HSU Hornafirði hefur verið ráðin bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Matthildur er 40 ára gömul og hefur undanfarin sex ár starfað sem framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Hornafirði. Áður starfaði hún sem sjúkraþjálfari hjá HSSA og sjálfstætt á eigin stofu.
Matthildur lauk BSc í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 2002, MSc í íþrótta- og heilsufræði frá HÍ árið 2011 og Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá HA 2017.
Matthildur hefur reynslu af sveitar­stjórnarmálum og sat í ýmsum nefndum sveitarfélagsins á árunum 2006-2012. Í starfi framkvæmdastjóra HSU Hornafirði og nefndarstörfum hefur hún unnið að stefnumótunarvinnu í heilbrigðisþjónustu, tómstunda-, skóla- og menningarmálum þá sat hún í stýrihóp sem mótaði Fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.
Matthildur hefur einnig verið virk í félagsstörfum á Hornafirði.
Matthildur er gift Hjálmari J. Sigurðssyni, sjúkraþjálfara og saman eiga þau þrjú börn, Tómas Orra 14 ára, Elínu Ásu 12 ára og Sigurð Arnar 6 ára.
Matthildur hefur störf 1. september nk.