Fjallaskíðamennska

0
968
Nú á að renna sér niður.

Í síðustu viku lögðu nemendur í fjalla­mennskunáminu land undir fót og héldu á Tröllaskaga til að læra fjallaskíðamennsku. Fjallaskíðaáfanginn í náminu er kenndur í samstarfi við Menntaskólann á Tröllaskaga sem er á Ólafsfirði.
Til stóð að hefja ferðina á mánudegi en vegna slæms ferðaveðurs var brottför frestað um einn dag. Hópurinn fór því frá Höfn á þriðjudagsmorgun og var kominn á Ólafsfjörð eftir um níu klukkutíma ferðalag. Miðvikudagurinn fór í að fara yfir og máta búnaðinn, læra grunnatriði um snjóflóð og síðast en ekki síst prófa að ganga á fjallaskíðum og renna sér smá. Farið var í stutta fjallaskíðaferð frá skólanum, innanbæjar á Ólafsfirði.
Að morgni fimmtudags var byrjað á að meta snjóflóðahættuspá og veðurspá fyrir daginn. Að því loknu hélt hópurinn í fjallaskíðaferð þar sem gengið var upp í fjall fyrir ofan bæinn og „út í sveit“ eins og heimamenn segja. Hópurinn renndi sér svo niður stutta brekku og tók æfingu í leit í snjóflóði með snjóflóðaýli og snjóflóðaleitarstöng. Að æfingunum loknum var gengið aftur í skólann. Þegar þangað var komið um klukkan tvö keyrði hópurinn yfir á skíðasvæðið á Siglufirði þar sem restinni af deginum var varið. Þeir sem ekki kunnu á skíði fengu kennslu í auðveldu brekkunum og hinir sem kunnu á skíði skíðuðu erfiðari brekkur af miklum krafti.
Á föstudegi var farið aftur á skíðasvæðið á Siglufirði. Lyftan var tekin upp og gengið út fyrir svæðið þar sem æfingar í mati á snjóflóðahættu voru gerðar, ásamt æfingum í utanbrautaskíðun.
Laugardagurinn var svo ferðadagur þar sem keyrt var frá Ólafsfirði á Höfn.
Næsta ferð hjá fjalla­mennskunemunum verður aftur á Tröllaskagann dagana 4. – 9. mars þar sem þeir ljúka seinni hluta fjallaskíðanámskeiðsins. Nú er bara að vona að snjórinn haldist þrátt fyrir hlýtt veður.

Sigurður Ragnarsson

www.fas.is
Ljósmyndir: Tómas Einarsson og Sigurður Ragnarsson