Breytingar í sorpmálum

0
2320

Sveitarfélagið Hornafjörður samdi eftir útboðsferli við Íslenska Gáma­félagið um sorp­hirðu, rekstur endur­vinnslustöðvar og urðunar­staðar í sveitarfélaginu. Áhersla verður lögð á enn betri flokkun og endurvinnslu í samræmi við stefnu bæjar­stjórnar og umhverfis­stefnu sveitarfélagsins. Samningurinn tók gildi þann 1. ágúst s.l.
Framundan eru nokkrar breytingar á sorpmálum sveitar­félagsins. Þjónusta við íbúa verður aukin með frekari flokkun en þann 1. október verður hólf fyrir lífrænan heimilisúrgang  sett í almennu tunnuna við öll heimili auk þess sem tunnan fyrir almenna sorpið verður stækkuð og losunardögum fækkað. Í tunnuna fyrir lífræna úrganginn fara allir matarafgangar sem verða að moltu sem verður aðgengileg fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Þann 1. október nk. fá íbúar síðan klippikort sem gildir að gámasvæði sveitarfélagsins til að losa sig við það efni sem ekki fer eða kemst í heimilistunnur. Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskildum úrgangi án greiðslu. Ef klippikortið dugar ekki út árið verður hægt að kaupa auka kort.
Fyrirtæki eru undanskilin útboðinu og greiða því samkvæmt gjaldskrá eins og áður.
Íslenska Gámafélagið var stofnað 1999. Tilgangurinn með stofnun fyrirtækisins var að auka samkeppni á því sviði atvinnulífsins sem snýr að sorphirðu. Hjá Íslenska Gámafélaginu starfa um 250 manns víða um land.
Íslenska Gámafélagið samdi við flesta starfsmenn sveitarfélagsins sem unnu að málaflokknum. Engar breytingar verða til að byrja með, nema að það verður ekki  hægt að koma á öðrum tíma í gámaportið en á opnunartíma.
Íslenska Gámafélagið og sveitarfélagið munu standa fyrir kynningu þegar helstu breytingar munu eiga sér stað. Þá verða frekari upplýsingar aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins.