Breytingar á sorpmálum

0
1580

Nú er verið að vinna að breytingum í sorpmálum svo hægt sé að nýta sem mest af sorpi sem kemur frá heimilum til endurvinnslu. Einnig er mikilvægt að hagræða sem best í málaflokknum því sveitarfélagið má ekki greiða með sorpurðun og hirðingu skv. lögum nr. 55/2003.
Þessa dagana er Íslenska Gámafélagið að dreifa tunnum í þéttbýli.
Helstu breytingar sem koma að breytingum í þéttbýli eru, almenna tunnan stækkar í 240 lítra og verður tæmd einu sinni í mánuði.
Í almennu tunnuna kemur auka hólf undir lífrænan úrgang, fyrir matarleifar og annað sem fellur til í eldhúsinu annan en hrámeti sem fellur til úr dýraríkinu.
Með lífræna hólfinu er lítil karfa og maíspokar til að hafa í eldhúsinu við söfnun á matarafgöngum, a.t.h. notið litlu körfuna til að fara með út í tunnu því pokarnir eru lífrænir og geta því rifnað ef þeir eru ekki tæmdir reglulega og ef það er of þungt efni í þeim
Engar breytingar verða gerðar á endurvinnslutunnunni hún mun vera tekin áfram einu sinni í mánuði eins og áður og sömu reglur gilda með hvað á að setja í hana.